Nú eru allar umsóknir og uppsagnir komnar undir þjónustugátt Akureyrar, sjá slóð Þjónustugátt Akureyrar, þar er flipi valinn efst til hægri, þar stendur Umsóknir, uppsagnir og fleiri eyðublöð, velja þann flipa.
Ef gera á skólasamning er valið LEIKSKÓLAR - skólasamningur við innritun - í samráði við skólastjóra
Þá er hægt að ýta á flipa sem heitir Leik- og grunnskólar, umsóknir, ofl. þar fyrir neðan birtast meðal annars þessi rafrænu eyðublöð
- Ósk um breytingar á skólatíma leikskóla
- Rafræn umsókn umsókn um leikskóla
- Umsókn um flutning milli leikskóla innan Akureyrar
- Umsókn um niðurfellingu á fæðisgjaldi í leikskóla
- Umsókn um tímabundna leikskóladvöl utan Akureyrarbæjar
- Uppsögn á leikskólaplássi
Einnig er sótt um bleyjusamninga undir Leikskólar-bleyjusamningar og valið Lundarsel. Á sama stað er rafrænt eyðublað Uppsögn samnings um áskrift í bleyjusjóð leikskólans Lundarsels
Önnur eyðublöð
2.5 ára skoðun eyðublað heilsugæslunar sem leikskólinn sér um ef foreldrar óska eftir
4 ára skoðun eyðublað heilsugæslunar sem leikskólinn fyllir út