Vinsamlega athugið að breytt fyrirkomulag á leikskólagjöldum tekur gildi 1. janúar 2024 – gjaldskrá leikskóla.
Við hvetjum ykkur öll til að fara inná reiknivélina https://reiknivelar.akureyri.is/leikskolar/ til að athuga hvort þið fáið afslátt á gjöldunum.
Athugið að það reiknast líka afsláttur á skráningardaga 2024.
Munið að setja inn heildartekjur frá árinu 2022.
Þeir sem telja sig geta nýtt afslætti vegna tekjutengingar þurfa að skila gögnum í gegnum þjónustugátt á akureyri.is sem allra fyrst https://thjonustugatt2.akureyri.is/login.aspx?ReturnUrl=%2f
Umsóknin heitir beiðni um afslátt af leikskóla- og frístundagjöldum.
Ef foreldrar hyggjast breyta skólatíma barns þarf að skila inn breytingablaði fyrir 20. desember. Breytingablöð er einnig að finna í Þjónustugátt á akureyri.is
Hér má sjá spurt og svarað um gjaldskrána https://www.akureyri.is/is/thjonusta/menntun/leikskolar/spurt-og-svarad-um-nyja-gjaldskra-leikskola